Tryggvi Björnsson
Hrímahestar ehf-Arnargerði 20-540 Blönduós
Forsíða
 Hrossarækt-Sala
Horse breeding-Horse sale
hrima@hrima.is


 
5. mars 2012

Sælt veri fólkið

Af mér er það helst að frétta að ég er á lífi.......
S.l. helgi fór fram Ís-landsmót á Svínavatni. Keppti ég þar á gæðingunum Stimpil frá Vatni, Blæ frá Miðsitju og Ramm frá Höfðabakka og gekk það all príðilega.

Stimpill hafnaði í örðu sæti í B-flokki, með einkunnina 8.73, tapaði ég þar fyrir Barböru Wensl og glæsihestinum Dal frá Háleggsstöðum, en hann hlaut einkunnina 8.76.




Blær frá Miðsitju vann A-flokkinn með einkunnina 8.54, en í öðru sæti varð Seiður frá Flugumýri.




Læt ég fylgja með eina mynd af Hvin frá Blönduósi sem er 4v. Álfssonur undan Hrímu frá Hofi



Einnig er hér video af 4v. hryssunni Kötlu frá Blönduósi:

http://www.youtube.com/watch?v=fRvNlL_djUA




20. ágúst 2011

Jæja, hvað er að frétta.

þá er eitthvað að frétta íþróttamót Þyts var um helgina og er gaman að segja frá því að Dynfari frá Steinnesi stóð sig með mikill prýði og vann þar 100 metra skeið á tímanum 7,64 og gæðingaskeið með einkun upp á hvorki meira né minna en 8,0 ég er ákavlega stoltur af stráknum mínum, ég keppti einnig á Sif frá Söguey og enduðum við í 3 sæti í Tölti með einkunina 7,33 og svo keppti ég á Stimpil frá Vatni í 4 gang og enduðum við í 3 sæti með einkunina 6,83. 


Dynfari frá Steinnesi 

mót vetrarins voru nokkur og læt ég hér fylgja með nokkrar myndir af kempunum sem ég keppti á í vetur.
 

 
Kafteinn frá Kommu 2 sæti í 5 gang í Húnveskuliðakeppninni 

Stimpill frá Vatni  3 sæti 4 gangur íþróttamót Þyts, 2 sæti á Fákaflugi í b flokki með 8,69.
 
Punktur frá Varmalæk 2 sæti í MD norðurlands í 4 gangi.

16.okt 2010

Já komið þið sæl og blessuð hvað er að frétta, jú það er mikið að frétta enda bara tæpt ár síðan ég ritaði hér inn síðast. Ég hef verið haldinn ritstíflu.



Bragi frá Kópavogi er seldur og heldur af landi brott nú fyrir jól og sé ég mikið eftir honum hann er stórbrotinn karakter en ég á nokkur afkvæmi undan honum og von í nokkrum næsta vor og vonandi verðu eitthvað af þeim í líkingu við hann.



En það var eitthvað sýnt á árinu og eitthvð keppt þrátt fyrir blessaða pestina sem lék okkur hestamenn grátt en ég sýndi meðal annars.
Penna frá Glæsibæ           8,26
Blæ frá Miðsitju                 8,25
Brimrúnu frá Efri fitjum   8,17
Brimkló frá Efri fitjum       8,15
Gígur frá Hólabaki             8,08

En í keppni var það helst að við Bragi unnum B flokkinn á Svínavatni sem var gaman í aftaka veðri, en svo vann mitt lið liðakeppnina ógurlegu með yfirburðum var það sérstaklega gaman.

Ég eignaðist 20% hlut í Blæ frá Miðsitju bráð efnilegum hesti að ég tel og bind ég miklar vonir við hann í vetur, en hann er undan Arði frá Brautarholti og Björk frá Hólum. En Blær fékk 8,25 í aðaleinkunn nú í vor.
Og ein hryssa í minni eigu fór í fyrsru verðlaun í sumar það var Skyggna frá Brekku rétt slefaði yfir 8 en hún var eins og mörg önnur hross sem maður sýndi á þessu ári langt frá sínu besta sökum þjálfunarleysis vegna pestar en ánægjulegt að hún færi í 1.v en hún er nú fylfull við Hróð frá Refsstöðum. Skyggna er sammæðra Grásteini frá Brekku.

Það kom hellingur af folöldum þatta árið en flest þeirra undan Braga, og hin undan Penna Glæsibæ,Gretti Grafarkoti,Grásteini Brekku,Hauk Lönguhlíð og Óm frá Kvistum.

En í sumar notaði ég Braga mest en aðrir hestar sem ég notaði þetta árið voru.

Grettir Grafarkoti
Fróði Staðartungu
Kapall Kommu
Stimpill Vatni
Óðinn Hvítárholti
Kafteinn Kommu
Gammur Steinnesi
Prestur Hæli

Nú eru frumtamningar komnar af stað og eru þar nokkur spennandi tryppi sem við eigum en þau eru.
Hvöt frá Blönduósi F; Orri Þúfu M; Hríma Hofi
Ör frá Kommu  F; Gígjar  Auðsholtshj M; Kjarnorka Kommu
Gullbrá frá Hólabaki F; Sigur  Hólabaki M; Lísa  Hólabaki
Speglun frá Stekkjardal F;Sigur Hólabaki M; Lúta Stekkjatrdal.

þetta er Hvöt frá Blönduósi.

En það eru kominn ný hross inn á sölusíðuna



4.nov 2009

Grásteinn seldur til Finnlands.



Komið þið sæl og blessuð

jæja þá er haustið að verða á enda runnið og frumtamningum að ljúka en þetta hefur verið rólegt og skemmtilegt, nokkrir álitlegir stóðhestar er búnir að vera hjá okkur einn þeirra er Andvari frá Akureyri undan Eldingu frá Blönduósi og Adam frá Ásmundastöðum hann fór mjög vel af stað í tamningu og kemur hann aftur um miðjan des aftur verður gaman að sjá hvernig hann þróast. Annar foli mjög álitlegur er Barón frá Efri fitjum undan gæðingamóðurinni Ballerínu frá Grafarkoti og Parker frá Sólheimum. Einnig er mjög skemmtilegur hestur inni núna undan Huginn frá Haga og Þrennu frá Þverá hann er því sammæðra Stínólu frá Áslandi (8,08) og  Sömbu frá Miðhópi (8,06) bind´´eg miklar vonir við þennan fola.   

Það er líka búið að selja aðeins en eitt í því ber þó hærra en annað  Grásteinn frá Brekku (8,54) seldist nú á dögunum hann er á leiðinni til Finnlands núna 14 nóvember og óska ég nýjum eigendum til hamingju með þennan mikla snilling og vonandi á hann eftir að reynast þeim vel. 

Þannig mig vantar fimmgangara fyrir veturinn eitthvað alvöru..

En annars fara að streyma að hrossinn sem verða í vetur eins og Bragi kópavogi,Penni Glæsibæ, Stefna Sauðanesi og Ólga steinnesi svo eitthvað sé nefnt.



11. okt 2009


Jæja komið þið sæl og blessuð, þá er komið að minni mánaðarlegu uppfærslu, gaman af því, fyrir ykkur eða ekki, en samt. Hjá mér gerist greinilega ekki neitt merkilegt miðað við hvað ég er latur að skrifa hér inn. En haustið er búið eð vera skemmtlegt að flestu leiti, búið að fara í göngur og smala stóðinu af heiðinni, það er alltaf skemmtilegt þegar tryppinn koma heim að hausti og sjá hvað þau hafa breyst, en þetta árið breyttust þau með minnsta móti enda fóru þau frekar seinnt á heiðina, en þau komu flest til rétta og það er vel.
Núna erum við að frumtemja aðeins og svo erum við með nokkur söluhross sem ég set inn video af inná söluhross á næstunni og vonandi er eitthvað þar sem einhver vill kaupa.
Meðal þeirra hrossa sem eru til sölu hjá mér eru stóðhestarnir Kufl frá Grafarkoti og Grásteinn frá Brekku, sem stóð efstur á FM á Kaldármelum í sumar og er hægt að sjá upplýsingar um hann hér á síðunn undir stóðhestar.



 

12. September 2009

Akkur frá Brautarholti fallinn


     

Akkur frá Brautarholti var felldur í dag eftir að hafa veikst alvarlega miðvikudaginn 2. september. Þrátt fyrir skjót og góð viðbrögð dýralækna sem gerðu allt til að reyna bjarga hestinum
var ekki annað hægt en að fella þennan mikla höfðingja. Leit þetta ágætlega út fyrst um sinn enn þar sem honum hrakaði mjög síðustu daga var þessi ákvörðun tekin.
 
 

 
 
Viljum við þakka þeim Gesti Júlíussyni og Björgvini Þórissyni dýralæknum ásamt Helga Leif og Örnu fyrir umönnunina á hestinum síðustu daga.
 
 

 
 
Það er mjög sorglegt að horfa á eftir þessum mikla höfðingja þar sem hann hefur veitt manni mikla og góða kennslu og árangur frá því að við eignuðumst hann í mars 2007.
 
 
 
  • Akkur hafði hlotið í kynbótadóm 8,23 fyrir sköpulag, 8,80 fyrir hæfileika og 8,57 í aðaleinkun
  • Sigurvegari í B. flokk hjá Þyt 2007 og 2009
  • Sigraði B. flokk á Ístölti Austurlands 2008
  • Þriðja sæti í B. flokk á Landsmóti 2008
  • Í úrslitum í B. flokk á Metamóti hjá Andvara 2007 og 2008
  • Fjórða sæti í B. flokk á FM 2009
Blessuð sé minning hans

31. ágúst 2009

Þá er komið að því að eitthvað gerist með þessa blessuðu síðu, nú ætla ég að reyna að vera duglegri að setja eitthvað hér inn. Þetta hefur verið hið skemmtilegast ár, mikið keppt og heill hellingur sýndur í kynbótadóm, þau hross sem fóru hæðst á árinu voru Grásteinn frá Brekku (8,54 ae)  8,68 fyrir hæfileika, Bragi frá Kópavogi (8,31 ae) 8,51 fyrir hæfileika, Ræll frá Gauksmýri (8,27 ae) 8,50 fyrir hæfileika.
 
Svo sýndi ég margar góðar og bráðefnilegar hryssur eins og Stefnu frá Sauðanesi, Ólgu frá Steinnesi, Köru frá Grafarkoti, Brimkló frá Efri Fitjum og margar fleiri. Svo sýndi ég líka Hyllingu frá Blönduósi sem er það fyrsta úr minni ræktun og hlaut hún 8,10 í aðaleinkunn, sem var gaman.

Af mótum var nóg af á árinu og mætti ég á þau nokkur, en ég sigraði A. flokk hjá Þyt á Grástein frá Brekku og B. flokk á Akk frá Brautarholti og annar var Bragi frá Kópavogi sem Fanney Dögg reið fyrir mig í úrslitum. Við Akkur enduðum í fjórða sæti í B. flokki á FM sem var fínt. Bragi gerði það líka gott á árinu vann B. flokk á Melgerðismelum varð annar á Fákaflugi, annar í fjórgang og tölti á íþróttamóti á Hólum í maí og sigraði tölt í liðakeppni okkar Húnvetninga í vetur.

Að venju fórum við Pétur Vopni á Ístölt Austurlands og vann Pétur áhugamannaflokkinn og ég vann opnaflokkinn í tölti á Júpíter frá Egilsstaðabæ, sem ég fékk lánaðan á staðnum, frábær hestur þar á ferð.

Við stórbændurnir fengum nokkur folöld og er ég nokkuð sáttur við þau allavegna ennþá, helmingurinn var hryssur og hefðu þær mátt vera fleiri :)

Þeir hestar sem notaðir voru þetta árið voru:

  • Bragi frá Kópavogi

  • Kappi frá Kommu.

  • Penni frá Glæsibæ.

  • Grettir frá Grafarkoti.

  • Haukur frá Lönguhlíð

 
  
Hermann Ágúst að dunda sér með folaldsmerunum :)

 
28.des 2008
 

 

Það gengur vel að uppfæra þessa síðu hjá mér skrifa reglulega á svona 2 mánaða fresti, haustið er búið að vera gott mikið selt og gengið vel með flest hrossin sem hafa verið í tamingu. Kafteinn frá Kommu kemur vel út eftir tveggja mánaða tamning mjög skemmtilegur hestur.

 

 

Nú eru kominn inn 25 hross ca þar af 12 stóðhestar þeir eru Akkur frá Brautarholti, Gígur frá Hólabaki,Bragi frá Kópavogi,Hróður frá Blönduósi,Glampi frá Stóra Sandfelli, Frontur frá Fremmra-Hálsi, Kafteinn frá Kommu svo einhverjir séu nefndir og svo eru væntanlegir Sólmundur frá Úlfsstöðum og Penni frá Glæsibæ en á þeim fola hef ég ógnartrú á enda stór og glæsilegur  tinnu svartur. 

 

 

Nú er búið að selja alla hlutina í Kapli frá Kommu, hluthafar í honum eru 28, við hittumst  á Blönduósi 27 des og held ég að flestum hafi litist vel á gripinn.

 

 

 


 

12. október 2008

 

 

Allt gott að frétta úr kreppunni bara verið að temja á fullu maður verður að vera með eitthvað klárt þegar Rússarnir koma að versla. Er með tvær öflugar "kellingar" með  mér núna þær Steffí og Hafdísi. En að öllu gamni slepptu þá gengur lífið sinn vana gang og það er gaman að skoða þessi tryppi að hausti og sjá hvað í þeim býr, við erum að temja nokkur hross sem ég á og líst mér ágætlega á hvernig til hefur tekist, 2 hryssur 4 gelding og 4 graðhesta. 

 

 

Ég var að setja inn myndir af folöldunum frá því í sumar fyrir þá sem hafa áhuga á því og vilja skoða þá klikkið á Myndir.

 

 

Ég var einnig að setja inn á sölu síðuna nokkur hross.

 

 

Þetta er Hildur frá Blönduósi undan Hlökk frá Hólum og Adam frá Ásmundastöðum hún er á 4 vetur bráð efnilegt tryppi.

 

 

Á næstu dögum mun ég setja inn upplýsingar um Kapal frá Kommu sem nú er komin í hlutfélag, en það eru nokkrir hlutir ósldir í honum af þeim hlutum sem verða seldir.

 


 


29.september 2008

 

 

Já sæll, nú er síðasta hryssan kominn heim með staðfest fyl. Það var haldið alltof mörgum hryssum þetta árið en það verður gaman þegar folöldin koma en þeir hestar sem ég notaði þetta árið voru.

 

 

Álfur frá Selfossi 2, Hugin frá Haga 2, Kerúlf frá Kollaleiru 2, Akkur frá Brautarholti 2, Tryggvi Geir frá Steinnesi 2, Grettir frá Grafarkoti 1,Kyljan frá Steinnesi 1,Hróður frá Refsstöðum 1, Sigur frá Hólabaki 1 og Hróður frá Blönduósi 1.

 


 

10. September 2008

 

 

Jæja nú er allt að gerast :) ný talva komin í gagnið svo vonandi verður hægt að fara að virkja þessa síðu eitthvað.

 

 

Nú eru frumtamningar hafnar, það eru nokkrir spennandi stóðhestar í þessum tryppahóp en sá sem mestar vonir eru bundnar við er án efa Kafteinn frá Kommu sem er sammæðra Kappa Heimsmeistara frá Kommu, og Blæ frá Torfunesi. Þetta er myndarlegur foli og mjög hreyfinga fallegur.

 

 

Svo ætla ég  að setja inn lista yfir tryppi sem eru til sölu, svo endilega kíkið á söluhross.

 


 

25.febrúar 2008

 

 

Nú eru fyrstu keppnir ársins búnar og hefur árangurinn verið svona upp og ofan fyrst var tölt í reiðhöllinni á Blönduósi og gekk það svona sæmilega, ég var í þriðja sæti á Óratoríu frá Syðri Sandhólum. En snilldin var að Helga Una sigraði á Sömbu frá Miðhópi sem er fimm vetra hryssa sem ég á ásamt Jóni Björnssyni á Akureyri, gaman af því. Svo var það meistaradeildin, þar var gert upp á bak og botninn skrapaður, en eigi skal bogna, maður gerir bara betur næst, (vonandi).

 

 

 

 

 

Samba frá Miðhópi og Helga Una.

 

 

Svo var komið að því að skreppa á Ístölt á Austurlandi, kerrunni var hent aftan í og haldið af stað og hirtir upp flækingar á leiðinni. Snoppa frá Kollaleiru og Dreyri frá Hóli fengu far austur með okkur Akk og virðist þessi ferð hafi lagst vel í þessi hross því þau fóru öll í úrslit í sínum greinum.

 

 

Akkur stóð sig með mikilli prýði og sigraði B. flokk gæðinga með 8,66 og er það gott svona snemma á keppnistímabilinu. Það er alveg magnað að heimsækja  þessa snillinga fyrir austan, takk fyrir mig.

 

AKKUR frá Brautaholti 1 sæti  í B flokki gæðinga á Ístölti á Austurlandi......


 

9. febrúar 2008

 

 

Nú er allt að gerast, við nýttum okkur veðurblíðuna í vikunni og tókum nokkur hross uppá video og tók ég nokkrar myndir út úr því. Tamningar ganga ágætlega og eru við með 32 hross núna, 8 stóðhesta, 22 hryssur og 2 geldinga, en þeim mun fækka fljótlega. Í vikunni kom til okkar sænsk stúlka að nafni Madelen Björck, og verður hún í vinnu hjá okkur í vetur og kannski lengur. Svo fer að líða að fyrstu keppnunum og stefni ég á Ístölt á Austurlandi í B flokk með Akk frá Brautarholti. Svo er það blessuð Meistaradeildin, fyrst er það fjórgangur og stefni ég þangað með ungan og óreyndan hest en það kemur í ljós síðar.

 

 

Akkur frá Brautarholti:  
   

 

 

 

 

 

 

Ármann frá Hrafnsstöðum, f: Gustur frá Hóli, m: Sella frá Hrafnsstöðum ae: 7,97

 

   

 

 

  • Birta frá Efri-Fitjum, f:Gammur frá Steinnesi                                        Samba frá Miðhópi, f: Óður frá Brún

  • m: Ballerína frá Grafarkoti                                                                                                             m: Þrenna frá Þverá

 

  

 


 

15. janúar 2008

 

 

Áramóta uppgjör ársins 2007

 

 

Mikið var aðhafst á síðasta ári og telst mér til að ég hafi tekið þátt í níu mótum og sýningum á tímabilinu febrúar til  aprílloka. Það var meðal annars ístölt á Austurlandi, ísmót á Svínavatni, Tekið til kostanna á Sauðárkróki og Meistarakeppni Húnvetninga.

 

 

Svo kom vorið þá byrjuð kynbótasýningar og gengu þær allflestar vel, sýnd voru 34 hross í fullnaðardóm og var meðaleinkunn þessara hrossa 7,94 sem er mjög viðunandi að MÉR finnst.

 

 

Hæstar á árinu  voru Nóta með 8,27 í ae þar af 8,50 fyrir hæfileika, Krafla 8,22 í ae þar af 8,34 fyrir hæfileika og Erla 8,16 í ae þar af 8,50 fyrir hæfileika.

 

 

Ég sýndi tvo stóðhesta báða 4. vetra; Sigur frá Hólabaki 8,01 í ae þar af  7,85 fyrir hæfileika og Ármann frá Hrafnsstöðum 7,97 í ae þar af 8,12 fyrir hæfileika. 

 

 

Ég tók einnig þátt í gæðingakeppnum og byrjaði ég á Hvammstanga hjá Þyt, sigraði B. flokk á Akk frá Brautarholti með 8,50 í forkeppni og 8,69 í úrslitum, var í öðru sæti í A flokk á Erlu frá Gauksmýri með 8,34 í forkeppni og 8,46 í úrslitum. Svo næst var það úrtaka fyrir Fjórðungsmót hjá Létti, var ég þar með Óratoríu frá Syðri Sandhólum í B. flokk og unnum við það með 8,69.

 

 

Á fjórðungsmótinu á Austurlandi enduðum við í 9. sæti og komumst því ekki í úrslit (sárt), en í tölti gekk betur og var ég þar með Erlu frá Gauksmýri og Óratoríu á meðal tíu efstu.

 

 

Í íþróttakeppni var einnig tekið þátt hjá Þyt og sigraði ég töltið á Óratoriu  með 7,12 í einkunn.

 

 

Á íslandsmótinu á Dalvík var ég í b úrslitum í tölti á Erlu frá Gauksmýri.

 

 

Samantekið í kílómetrum hef ég farið ca 143 km í kynbótasýningum á árinu miðað við 34 fulldæmd hross  á 300 metra langri braut og farið 14 ferðir með yfirlitssýningu

 

 

.

 

 

Sigur á Hólabaki á Fjórðungsmótinu á Austurlandi

 


 

 

Gleðileg jól og farsælt komandi ár

 

 

Þakka viðskiptin á árinu sem er að líða

 

 

 


 

 

 

 

18. desember 2007

 

Fátt markvert er að frétta þessa dagana annað en skítaveður og lítið hægt að ríða út.  En nú á næstu dögum kemur Akkur heim útskrifaður af tíu daga sund námsskeiði hjá Helga Leif og Örnu alveg flugsyndur kallinn og byrjaður að troða marvaða og allt,,,,,, ha ha .  Hann Garpur frá Hvoli slasaðist mjög illa á afturfæti fyrir ári og var ekki útlit fyrir að honum yrði nokkurn tíman riðið aftur. En eftir dýralæknismeðferð og síðan mánaðardvöl í sjúkraþjálfun hjá Helga og Örnu, undir eftirliti hjá Susy dýralækni, byrjaði kappinn að beita fætinum aftur og núna er búið að ríða honum í ca 2 mánuði og hann hlífir sér ekki enn, svo er bara að vona það besta, þannig að sund getur gert gott með.

 

 


 

 

 

 

10. desember 2007

 

Uppskeruhátíð Hrossaræktasamtaka A-Hún og Hestamannafélagsins Neista var haldin 1. des. Þar voru efstu kynbótahrossin í hverjum flokki verðlaunuð, ásamt því að knapi ársins var valinn hjá Neista, var það Ólafur Magnússon á Sveinsstöðum sem varð fyrir valinu og var hann vel að því komin. Hann vann öll innanhúsmótin í reiðhöllinni og  B. flokk hjá Neista, einnig var hann í úrslitum í Tölti á Íslandsmótinu á Dalvík- til hamingju Óli. 

 

 

Efstu hrossin voru .

 

 

 7v Hryssur Þruma frá Skagaströnd 8,27 ae                      7 v Stóðhestur   Ás frá Breiðabólstað 7,79 ae

 

 

6 v Hryssur Nóta frá Útnyðringsstöðum 8,27 ae                 6 v Stóðhestur   Skuggi frá Sturluhóli 

 

 

5 v Hryssur Griffla frá Geitarskarði  8,06 ae                      Enginn sýndur

 

 

4 v Hryssur Samba frá Miðhópi 7,55 ae                            4 v Stóðhestur  Kvistur frá Skagaströnd 8,17 ae

 

 

Hæðst dæmda hryssan var Þruma frá Skagaströnd  8,27.

 

 

Ræktunarbú ársins er Sunnukvistir,  Til hamingju með það.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Nóta mín var líka með 8,27 en lægri á AUKASTÖFUM :)


 

 

 

 

5.desember 2007

 

Var að setja eina hryssu á sölusíðuna. Set inn fleiri söluhross fljótlega.

 

 

Allt gott að frétta af hestum og mönnum nú eru að koma ný hross á hverjum degi bæði stóðhestar og hryssur, Stóðhestarnir sem eru komnir eru  undan Sæ frá Bakkakoti, Galsa frá Sauðárkróki,Parker frá Sólheimum,Hervari frá Sauðárkróki, Þrist frá Feti og Sveini Hervari svo einhverjir séu nefndir..

 


 

 

 

 

27. nóvember 2007

 

Þessa dagana eru hross að koma inn sem stefnt er á að gera eitthvað með næsta sumar, svo sem kynbótadóma og hinar ýmsu keppnir.

 

 

Nú eru komin á hús; Akkur frá Brautarholti, Garpur frá Hvoli og nokkrir aðrir graðhestar. Hryssurnar fara að týnast inn næstu daga, svo sem Krafla frá Brekku, Óratoría frá Syðri-Sandhólum, Kyrja frá Sólheimum og margar fleiri hryssur sem ég bind miklar vonir við. Einnig koma til mín seinnipart vetrar nokkrar góðar hryssur sem ég sýndi síðastliðið sumar, enn meira af því síðar.

 

 

Eins og síðastliðin vetur þá erum við tvö í hesthúsinu, Helga Una og ég og vonandi fáum við einhvern okkur til aðstoðar eftir áramót. Ef þið vitið um lipran og áhugasaman starfsmann, þá endilega látið mig vita.

 

 

Hér fyrir neðan má sjá myndir af drengjunum mínum, fyrir utan þann nýjasta. Eins og sést þá stefni ég að því að eftir þrjú ár hafi ég hvern vinnumanninn á fætur öðrum.........því eins og allir vita getur verið erfitt að fá vinnumenn í dag :)

 

 

 

Kristófer Már

 

  

 

Kristófer Már og Aron Orri

 

Anton Ingi




ForsíðaSöluhross/Horse SaleHrossarækt/Horse BreedingStóðhestar/StalionSýnd hrossTryppiKapall frá KommuLjósmyndasafnGestabókTenglar