Hrossaræktin hjá mér og Ásgeiri Blöndal hófst árið 2000 og var hún ekki stór í sniðum, en hefur farið ört stækkandi. Við teljum okkur trú um að við eigum ágætis merar og streðum við að nota DÝRUSTU hestana og vonum við að útkoman verði þokkaleg, en það á eftir að koma í ljós. Til að stytta okkur leið í þessu öllu saman þá keyptum við öll hrossin af Vilbergi Jónssyni í Kommu og vonandi á sú ræktun eftir að ganga jafnvel hjá okkur og honum.


|